Fyrsta landsliðsmarkið hjá norska fyrirliðanum

Brede Hangeland skorar hér markið gegn Íslendingum í gær á Laugardalsvelli. stækka

Brede Hangeland skorar hér markið gegn Íslendingum í gær á Laugardalsvelli. mbl.is/Eggert

Brede Hangeland fyrirliði norska landsliðsins í fótbolta skoraði jöfnunarmarkið gegn Íslendingum í gær með skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu frá John Arne Riise. Athygli vekur að hinn 1.94 m. hái varnarmaður skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í gær í sínum 62. leik.

Nils Johan Sem fyrrum þjálfari norska landsliðsins og yfirmaður knattspyrnumála hjá norska knattspyrnusambandinu sagði við mbl.is í gær að Hangeland væri vissulega góður að skalla boltann – en aðallega í vörn. „Hann hefur ekki skorað mikið af mörkum í gegnum tíðina en hann er góður skallamaður. Ég veit ekki hvernig stendur á því að hann hefur ekki skorað fleiri mörk eftir horn – og aukaspyrnur í leikjum með okkur.

Hangeland, sem er 29 ára gamall, hefur ekki verið þekktur fyrir að skora mörk með Fulham í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur skorað 3 mörk í 87 leikjum og sem leikmaður FCK í Kaupmannahöfn skoraði hann 3 mörk í 63 leikjum. Hann skoraði 6 mörk í 114 leikjum sem leikmaður Viking í Stavanger á árunum 2000-2005.  

Ítarleg umfjöllun um landsleik Íslands og Noregs er í fjögurra síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is