Gatlin var hissa þegar hann sá 9,81 sek á skjánum

Justin Gatlin. stækka

Justin Gatlin. Reuters

Bandaríski spretthlauparinn Justin Gatlin sigraði í 100 metra hlaupi á frjálsíþróttamóti sem fram fór í Padua á Ítalíu í gær en hann var afar hissa þegar hann sá tímann sem birtist á risaskjá á vellinum, 9,81 sekúndur.

Gatlin, sem varð Ólympíumeistari árið 2004 í Aþenu, byrjaði nýverið að keppa á ný eftir fjögurra ára keppnisbann vegna lyfjanotkunar. Hann hefur lýst því yfir að hann muni hlaupa undir 10 sekúndum á ný en 9,81 sek. var ekki það sem hann átti von á. Bilun í tímatökubúnaði varð til þess að rangur tími birtist á risaskjánum og Gatlin reyndist hafa hlaupið 100 metrana á 10,15 sekúndum.

Besti tími Gatlin er 9,85 sek., en hann hefur einni hlaupið á 9,77 sek., en sá árangur var þurrkaður út eftir að hann féll á lyfjaprófi.

Usain Bolt frá Jamíku á heimsmetið 9,58 sek., sem hann setti á HM í fyrra.

Bestu tímar eftirtaldra hlaupara eru þessir:

9,58 Usain Bolt, Jamaica 16.8.2009
9,69 Tyson Gay, USA 20.9.2009
9,72 Asafa Powell, Jamaica 2.9.2008
9,79 Maurice Greene, USA 16.6.1999
9,84 Donovan Bailey, Canada 27.7.1996
9,84 Bruny Surin, Canada 22.8.1999
9,85 Leroy Burrell, USA 6.7.1994
9,85 Justin Gatlin, USA 22.8.2004
9,85 Olusoji A. Fasuba, Nigeria 12.5.2006
9,86 Carl Lewis, USA 25.8.1991
9,86 Frank Fredericks, Namibia 3.7.1996
9,86 Ato Boldon, Trinidad 19.4.1998
9,86 Francis Obikwelu, Portugal 22.8.2004

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is