Níu létust í flugslysi á Nýja Sjálandi

Níu manns, þar af fjórir útlendingar, létust er fallhlífarstökkflugvél brotlendi og varð eldi að bráð á vinsælum  ferðamannastað á Nýja-Sjálandi í dag. Vélin brotlenti rétt við Fox jökulinn sem er á heimsminjaskrá UNESCO á vesturströnd Suðureyju.

Að sögn lögreglu létust allir um borð en útlendu ferðamennirnir voru frá Englandi, Írlandi, Þýskalandi og Ástralíu.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is