Innlent
| mbl
| 5.9.2010
| 16:23
Bongóblíða í Hrísey í gær
Sólarstrandarstemmning var í Hrísey í gær en þar lék veðrið við eyjaskeggja og aðkomufólk. Karlar og konur dunduðu sér í svörtum sandi fjörunnar eða slökuðu á veðublíðunni.
Félagar í hjólaklúbbnum Möllersfélagar frá Akureyri voru staddir í eynni en þeir höfðu hjólað til Árskógarstrandar og héldu þaðan til Hríseyjar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







