Deilt um uppboð á munum Jackson

Hvítur hanski líkt og sá sem verður boðinn upp í október stækka

Hvítur hanski líkt og sá sem verður boðinn upp í október Reuters

Forsvarsmenn  uppboðshúss sem ætlar að selja yfir 100 muni sem áður voru eigu popparans Michael Jackson segja að uppboðið sé ekki í andstöðu við vilja Jackson. Meðal annars á að selja par af hvítum hönskum og æfingagalla sem Jackson notaði á sínum tíma.

Uppboðið fer fram þann 9. október í Macau en það er bandarískt uppboðsfyrirtæki, Julien's Auctions, sem selur munina.

Í viðtali sem birtist í breska blaðinu Daily Star í síðasta mánuði er haft eftir fyrrum lögmanni Jackson, Brian Oxman, að Jackson hafi reynt að koma í veg fyrir uppboðið skömmu fyrir andlát sitt. „Þetta er hneyksli. Í maí 2009 átti að halda uppboð. Michael krafðist þess að það yrði stöðvað. Hann vildi aldrei að eigur hans færu á uppboð," segir Oxman í viðtalinu.

Darren Julien, forstjóri Julien's Auctions, segir hins vegar í viðtali við kínverskt dagblað í dag að Oxman hafi með viðtalinu verið að reyna að vekja athygli á sjálfum sér með  þessum athugasemdum. Segir hann munina sem verða boðnir upp koma frá vinum og vandamönnum Jackson en hann hafi gefið þeim þá á meðan hann var enn á lífi. Ekki sé verið að selja muni úr dánarbúinu.

Jackson heimilaði á síðasta ári Julien að bjóða upp 1.300 muni sem voru á Neverland búgarðinum sem voru í eigu Jackson. En söngvarinn lét aldrei sjá sig aftur á búgarðinum eftir að hann var sýknaður af ákæru um barnaníð þar árið 2005.

Hins vegar varð aldrei neitt af uppboðinu vegna deilna milli lögmanna Jackson og Julien's sem endaði með samkomulagi skömmu fyrir andlát popparans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is