ETA boðar vopnahlé

ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, boðar vopnahlé í myndbandi sem sent hefur verið á fjölmiðla. Þar heitir hreyfingin því að hætta að beita vopnum í baráttu sinni fyrir sjálfstæði Baskahéraðs. Spænsk stjórnvöld hafa áður lýst því yfir að ekki verði samið við ETA svo lengi sem hreyfingin beiti vopnum. 

Alls hafa 820 látist í ofbeldisverkum ETA á síðustu fjörtíu árum. Samkvæmt BBC er þetta í þriðja skiptið sem ETA boðar vopnahlé en í bæði skiptin sveik hreyfingin það. Engin viðbrögð hafa borist frá spænskum stjórnvöldum vegna boðaðs vopnahlés nú.

 Yfirlýsing ETA er á vef dagblaðsins Gara sem er gefið út í Baskahéraði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is