Innlent
| mbl
| 5.9.2010
| 10:19
Fara af gjörgæslu í dag
Mennirnir tveir sem slösuðust í bílslysi á Reykjanesbraut í gær eru enn á gjörgæsludeild Landspítalans en ástand þeirra er stöðugt og þeir verða fluttir á almenna deild í dag, að sögn læknis á gjörgæsludeild í morgun.
Sex voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn á Reykjanesbraut, tveir strax lagðir inn á gjörgæsludeild en hinir á almenna deild. Klippa þurfti báða bílana í sundur til að ná farþegunum út.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






