Hargreaves og Bebé ekki í Meistaradeildina
Owen Hargreaves er enn ekki kominn af stað að ráði eftir langvarandi meiðsli. Reuters
Miðjumaðurinn Owen Hargreaves og framherjinn dýri Bebé leika ekki með Manchester United í Meistaradeild Evrópu til áramóta en hvorugur er í 24 manna hópi sem United hefur tilkynnt fyrir riðlakeppnina.
Hargreaves hefur verið nánast frá keppni í tvö ár vegna þrálátra meiðsla og fjarvera hans kemur ekki sérlega á óvart. Þó var hann á batavegi í vor, spilaði þá einn deildaleik sem varamaður og kom við sögu í nokkrum varaliðsleikjum.
Hinn portúgalski Bebé kostaði 7 milljónir punda þegar United keypti hann af Vitoria Guimaraes í sumar en hann er ekki kominn vel af stað hjá félaginu og komst ekki í varalið þess um daginn.
Hópurinn sem nú er tilkynntur verður óbreyttur í riðlakeppninni sem lýkur 7. desember. Eftir það er hægt að gera á honum breytingar áður en 16-liða úrslitin hefjast seinni hluta vetrar.






