Hefur verið of lengi í Brussel
Skoski Evrópuþingmaðurinn Struan Stevenson er í lesendabréfi í blaðinu Scotsman sakaður um lýðskrum með því að krefjast þess að Evrópusambandið setji löndunarbann á Íslendinga og Færeyinga vegna makrílveiða.
Bréfritarinn heitir Christian Allard en hann hefur að undanförnu tjáð sig nokkuð á bloggvefjum um makrílmálið og Stevenson. Segist hann hafa starfað í skoskum sjávarútvegi í tuttugu ár.
Allard segir að Stevenson hafi hagað sér eins og yfirgangsseggur með yfirlýsingum sínum um að Evrópusambandið eigi að stöðva veiðar Íslendinga og Færeyinga í þeirra eigin lögsögu. Einhver þurfi að útskýra fyrir þingmanninum, að Skotar eigi ekki fiskinn sem syndi í lögsögu Íslendinga og Færeyinga.
Þá segir Allard, að Stevenson ekki gera sér grein fyrir afleiðingunum af makrílstríði við Ísland og Færeyjar, þótt hann sé varaformaður sjávarútvegsnefndar Evrópuþingsins. Verði hætt að landa fiski frá Íslandi í enskum höfnum verði það litla, sem eftir er af enskri fiskvinnslu að engu og loka þurfi verksmiðjum eða draga verulega úr starfsemi þeirra.
Segir Allard að vanþekking Stevensons kunni að stafa af því, að hann hafi dvalið of lengi í Brussel. Það sé hins vegar ekki afsökun fyrir að vita ekki, að ekki sé hægt að krefjast innflutningsbanns vegna þess að í gildi séu viðskiptasamningar milli Evrópusambandsins og Íslendinga og Færeyinga.






