Hvalkjöt í japönskum skólum

Hvalkjöt. stækka

Hvalkjöt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvalkjöt er á boðstólum í 5.355 af 29.600 grunn- og menntaskólum Japans, samkvæmt nýrri skoðanakönnun þar í landi. Skólarnir buðu upp á hvalkjöt einu sinni eða oftar í hádeginu á síðasta skólaári sem lauk í mars.

Hvalkjöt var á sjöunda og áttunda áratugnum algeng fæða í skólum í Japan en á þeim tíma var ársneysla Japana 220 þúsund tonn af hvalkjöti.

Hins vega dró mjög úr vinsældum þess og á síðasta áratug var ársneysla Japana um eitt þúsund tonn á sama tíma og Alþjóðlega hvalveiðiráðið bannaði hvalveiðar í atvinnuskyni. En svo virðist sem hvalkjöt njóti aukinna vinsælda á ný, samkvæmt frétt Kyodo fréttastofunnar.

Fram kemur að hvalkjötið sé selt afar ódýrt af hvalarannsóknarstofnun Japans til skóla, eða á einn þriðja af því sem það kostar út í búð. 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is