Innlent
| mbl
| 5.9.2010
| 15:14
Íhuga að láta taka sýni
Séð yfir Grímsnesið. www.mats.is
Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps íhugar að láta framkvæma sýnatöku á nokkrum þeim stöðum þar sem bílar frá Holræsa- og stífluþjónustunni hafa vanið komur sínar.Þetta kemur fram á vef Sunnlenska. Eins og fram hefur komið í fréttum losuðu starfsmenn fyrirtækisins seyru út á vatnsverndarsvæði við Þingvallavatn.
,,Það hefur engin ákvörðun verið tekin um hvernig við berum okkur að í þessu máli en vissulega skoðum við þann möguleika að láta framkvæma sýnatöku. Við fylgjumst með því hvernig málinu vindur fram,“ segir Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri.
Ingibjörg segir ólíklegt að samningur við fyrirtækið yrði endurnýjaður en hann rennur út um næstu áramót.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






