Íslendingar á meðal þeirra efstu í Huddinge

Kristín Birna Ólafsdóttir. stækka

Kristín Birna Ólafsdóttir. mbl.is

Íslendingar náðu fínum árangri á fyrri keppnisdegi sænska meistaramótsins í fjölþrautum sem fram fer í Huddinge í Svíþjóð.

Kristín Birna Ólafsdóttir ÍR er í öðru sæti í sjöþraut kvenna með 3162 stig sem er aðeins 6 stigum frá árangri fyrri dags  í  hennar  bestu þraut, sem er næst besti árangur íslenskra kvenna á eftir Íslandsmeti Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur.

Sveinbjörg Zóphoníasardóttir USÚ er í 6. sæti í kvennaflokki og 3. sæti í 19 ára flokki með 2991 stig sem er betri árangur en eftir fyrri dag í Evrópubikakeppninni  fyrr í sumar.

Arna Stefanía Guðmundsdóttir ÍR er í öðru sæti í flokki 16 ára með 2854 stig sem er betri árangur en þegar hún vann til bronsverðlauna á NM unglinga í sumar.

Ingi Rúnar Kristinsson Breiðabliki er í 2. sæti í flokki 17 ára með 3142 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is