Mannmergð í sextugsafmæli Þjóðleikhússins
Í dag var haldið upp á sextugsafmæli Þjóðleikhússins með pompi og prakt í húsakynnum þess við Hverfisgötu. „Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel,“ segir Þórir Hrafnsson, markaðs- og kynningarstjóri leikhússins, en kveðst ekki hafa tekið saman hve margir komu og tóku þátt í gleðinni. „En það var alveg ótrúlega löng röð þegar var opnað og það er búið að vera alveg stappfullt. Þetta sprengdi allar björtustu vonir.“
„Fólk er búið að vera ótrúlega þolinmótt og við viljum færa því kærar þakkir fyrir það og ég held að flestir hafi skemmt sér vel,“ segir Þórir.
Nokkur áhersla var lögð á að hafa ofan af fyrir yngstu unnendum leiklistarinnar enda hefur leikhúsið frá upphafi lagt áherslu á metnaðarfullar og góðar barnasýningar. Sprellfjörug dagskrá fór fram á stóra sviðinu þar sem gamlir kunningjar og nýir vinir komu fram.
Má þar á meðal nefna Lilla klifurmús og bakaradrenginn úr Dýrunum í Hálsaskógi, Kasper, Jesper og Jónatan, ræningjana knáu frá Kardimommubæ, Litla Kláus og dvergana snjöllu úr Skilaboðaskjóðunni. Þá steig prinsessan úr leikritinu Ballið á Bessastöðum á stokk í Kristalsal leikhússins auk þess sem Fíasól og Ingólfur Gaukur létu sig ekki vanta.
Að sögn Þóris setti bilun í brunakerfi hússins ekki strik í reikningin en hún olli því að brunaboðar fóru í gang. Var fólki tjáð strax að ekkert væri að óttast og málið leyst fljótt og farsællega þegar lögregla, slökkvilið og sjúkralið koma á staðinn.
Boðið var upp á skoðunarferð um leikhúsið þar sem leyndarmál þess voru afhjúpuð en ferðin bar titilinn Leyndardómar Þjóðleikhússins. Kökur og grillaðar pylsur voru á borðum fyrir alla viðstadda og fólki gefinn kostur á hestvagnaferðum og föndri. Að auki var dagskrá leikársins kynnt.








