Óeirðir í Hamborg í nótt

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Til átaka kom milli lögreglu og gesta árlegrar götuhátíðar í Hamborg sem fram fór í nótt. Er þetta annað árið í röð sem óeirðir brjótast út í tengslum við hátíðina en fjöldi ungs fólk sækir hana til að njóta tónlistar, matar og drykkjar.

Mótmælendur hentu grjóti, flöskum og öðru lauslegu í lögreglu sem svaraði fyrir sig með háþrýstidælum. Vegna óeirðanna í fyrra lögregla við öllu búin nú og voru um tvö þúsund lögreglumenn á staðnum. Nokkrir óeirðaseggir voru handteknir og tveir lögreglumenn meiddust í átökunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is