Sjálfsmorðsárás í Dagestan

Fimm létu lífið og 39 særðust í sjálfsmorðsárás, sem gerð var á rússneska herstöð í rússneska Kákasushéraðinu Dagestan í morgun. 

Fréttastofan Ria Novosti segir, að árásin hafi verið gerð á bækistöðvar sérsveitar í bænum Dalny, rétt hjá borginni Buinaksk.

Sprengju- og skotárásir eru nánast daglegt brauð í Norður-Kákasus, einkum í Dagestan þar sem stjórnvöld eiga í höggi við íslamska uppreisnarmenn. 

Sérfræðingar segja að fátækt og spilling skapi frjóan jarðveg fyrir ofbeldi og  íslamskir stríðsmenn eiga auðvelt með að fá ungt fólk á svæðinu til liðs við sig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is