Snarpir eftirskjálftar á Nýja-Sjálandi
Snarpir eftirskjálftar hafa riðið yfir Nýja-Sjáland í morgun og mældist sá öflugasti 5,1 stig. Jarðskjálfti, sem mældist 7,1 stig, varð á Suðureyju á föstudagskvöld og olli hann miklum skemmdum á mannvirkjum í borginni Christchurch en engu manntjóni.
Talið er að um 500 byggingar hafi skemmst í jarðskjálftanum á föstudagskvöld, þar af um 90 í miðborg Christchurch þar sem um 350 þúsund manns búa. Í skjálftunum í morgun hafa múrsteinar hrunið úr húsum. Þá hefur verið mjög hvasst í borginni og gera veðurspár ráð fyrir allt að 36 metra vindhraða á sekúndu. Er óttast að veðrið valdi því að hús, sem hafa laskast, hrynji.
Um 300 manns hafa hafst við í neyðarskýlum og góðgerðarsamtök hafa gefið um 1000 manns mat. Búið er að koma rafmagni á um 95% af svæðinu en ekki er enn talið óhætt að drekka vatn vegna mengunar frá brotnum leiðslum.
Enn er yfirlýst neyðarástand í Christchurch. John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sem ólst upp í borginni og á ættingja þar, sagði að uppbyggingarstarfið muni taka langan tíma.
Jarðskjálftar eru algengir á Nýja-Sjálandi og taka byggingareglugerðir mið af því. Tjónið, sem varð í skjálftanum á föstudag, er talið það mesta sem orðið hefur af völdum jarðskjálfta í landinu frá árinu 1931 þegar borgin Napier lagðist í rúst. Skjálftinn er líka meðal þeirra öflugustu, sem orðið hafa á Nýja-Sjálandi.






