Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 5.9.2010
| 10:02
Snedeker og Day efstir - Tiger Woods lék vel
Brandt Snedeker frá Bandaríkjunum deilir efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á Deutsche Bank meistaramótinu í golfi en Ástralinn Jason Day er einnig á 12 höggum undir pari samtals. Mótið er annað af alls fjórum mótum Fed-Ex úrslitakeppninnar þar sem að sigurvegarinn fær um 1,2 milljarða kr. í verðlaunafé.
Snedeker lék best allra á öðrum keppnisdegi eða 64 höggum. Tiger Woods náði sér á strik á öðrum keppnisdegi og lék á 65 höggum eða 6 höggum undir pari vallar. Hann er samtals á 5 höggum undir pari í 29.- 35. sæti. Woods bætti stöðu sína um 58 sæti á milli keppnisdaga.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin