„Þetta var líklega ekki sá stóri“
„Eftirskjálftarnir eru í rénun og hér er allt að róast núna. En enn er yfirlýst neyðarástand og útgöngubann,“ sagði Hilmar Kjartansson læknir í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í morgun. Hann býr ásamt eiginkonu sinni Svövu Kristinsdóttur og börnum Birnu Líf og Árna Kristni í úthverfi borgarinnar Christchurch á Nýja-Sjálandi þar sem mjög öflugur jarðskjálfti, 7,1 á Richter, varð aðfararnótt laugardagsins.
Enginn hefur týnt lífi í hamförunum.
Finnum eftirskjálftana vel
Snarpir eftirskjálftar urðu á svæðinu í morgun og mældist sá öflugasti 5,1 stig. „Engar skemmdir hafa orðið á okkar húsi og á okkar svæði er rafmagn komið á og við höfum rennandi vatn. Við höfum sloppið ótrúlega vel miðað við marga aðra; við búum í hlíðunum og okkar hús er er byggt á kletti. Christchurch er byggð á sandi og leir, jarðvegurinn var svo blautur að úr varð hálfgerð leðja og mörg hús sukku að hluta til. Þess vegna eru skemmdirnar svona rosalega miklar. Ég veit að í nokkrum hverfum í borginni er fólk enn án vatns en rafmagn er víðast komið á; alls staðar nema í miðbænum, held ég megi segja.“
Hilmar segir þau hafa fundið mjög vel fyrir eftirskjálftunum í dag. „Krakkarnir eru orðnir sjóaðir í þessu. Um leið og þau finna minnstu skjálfta eru þau fljót að fara undir borð; ég held satt að segja að þau séu ekki hrædd heldur finnst þeim þetta mikið sport!“
Reiknað með enn öflugri eftirskjálfta
Hann segir fólk halda að enn geti komið stór eftirskjálfti, jafnvel um 6 stig á Richter og allir séu því í startholunum. „Og vísindamenn telja að skjálftinn sem reið yfir á föstudaginn sé líklega ekki sá stóri sem lengi hefur verið beðið eftir, sem er merkilegt. Þessi var á öðru misgengi, sem raunar var ekki vitað um. Annað misgengi er í fjallgarðinum og þar er reiknað með mun stærri skjálfta á næstu áratugum. Spennan á þeim flekamótum er nú stöðugt mæld og rýnt í hvort stór skjálfti gæti orðið þar á næstunni. Hann yrði væntanlega uppi í fjöllunum; fjallgarðurinn liggur alveg niður eftir suðureyjunni og ef skjálftinn yrði beint í vesturátt frá Christchurch er það ekki nema í um það bil 150 kílómetra fjarlægð frá okkur. Sérfræðingar segja að hann gæti orðið að minnsta kosti 10 sinnum kraftmeiri en sá sem reið yfir á föstudaginn og þá er líklegt að hér yrðu miklar skemmdir.“
Fram hefur komið, að sögn Hilmars, að „sá stóri“ komi venjulega á um það bil 300 ára fresti og nú séu einmitt um 300 ár liðin frá þeim síðasta. „Skekkjumörk eru talin um það bil 50 ár.“ Talið er að „sá stóri“ gæti orðið rúmlega 8 á Richter og jafnvel rúmlega það.
Fólk sjóði allt vatn
Hilmar segir mælst til þess að alls staðar í borginni sjóði fólk vatn, jafnvel það sem kemur úr krananum því leiðslukerfi hafa víða skemmst. „Það er álitið að vatnið getið verið mengað. Nú er spáð ansi kröftugum stormi og óttast að byggingar sem eru laskaðar geti hrunið þegar hvessir.“ Nefndar eru í því sambandi margar sögulegar byggingar í borginni, hlaðnar úr múrsteini. „Mörg þessara húsa eru 100-150 ára gömul,“ og fólki finnst það sorglegt ef þeir hrynji til grunna.
Enn er ekki byrjaði að hvessa í Christchurch en Hilmar segir mikið rok og rigningu á vesturströndinni. „Þetta er væntanlega á leiðinni yfir fjallgarðinn eins og er.“
Neyðarástand í nokkra daga enn
Hilmar segir ráð fyrir því gert að neyðarástandi verði áfram lýst í nokkra daga, margir vinnustaðir verði lokaðir á morgun og þegar hafi verið ákveðið að skólar og leikskólar verði ekki opnir fyrr en eftir miðja viku í fyrsta lagi. Skoða þurfi byggingar gaumgæfilega áður en starfsemi hefst á ný. Nú er sunnudagskvöld í Christchurch.
Fjölskyldan hefur þegar fyllt baðkarið af vatni, ef ske kynni að veitukerfið bili enn frekar. Svo sé um marga fleiri. „Ef við hættum að fá rennandi vatn getum við soðið upp úr baðkarinu og það ætti að duga í nokkra daga.“
Hann ræddi við vinafólk fjölskyldunnar inni í borginni í dag og segir það ekki jafn heppið og sína fjölskyldu. „Mjög miklar skemmdir urðu í götunni hjá þeim og hús sokkið að hlut til. Rafmagn komst reyndar á í dag en þau eru vatnslaus og holræsi virka ekki. Ekki er hægt að nota klósettið og þau urðu því að grafa kamar í skyndi úti í garði.“








