Bebé í Meistaradeildarhópi United
Hinn portúgalski Bebé sem Manchester United keypti frá Vitoria Guimaraes í sumar fyrir 7 milljónir punda er eftir allt saman í leikmannahópi United sem félagið hefur tilkynnt fyrir riðlakeppnina í Meistaradeildinni.
Í gær bárust fregnir af því að Bebé og Owen Hargreaves hefðu ekki verið í 24 manna hópnum sem United sendi UEFA en talsmenn UEFA greindu frá því dag að Portúgalinn væri í þeim 25 manna leikmannahópi sem Manchester United tilkynnti fyrir riðlakepnina sem hefst um miðjan þennan mánuð.
Hargreaves er hins vegar ekki í hópnum en hann hefur verið nánast frá
keppni í tvö ár vegna þrálátra meiðsla og fjarvera hans kemur ekki
sérlega á óvart. Þó var hann á batavegi í vor, spilaði þá einn
deildaleik sem varamaður og kom við sögu í nokkrum varaliðsleikjum.
Hópurinn sem nú er tilkynntur verður óbreyttur í riðlakeppninni sem lýkur 7. desember. Eftir það er hægt að gera á honum breytingar áður en 16-liða úrslitin hefjast seinni hluta vetrar.






