Erlent
| mbl
| 6.9.2010
| 9:28
Grænlendingar veiða hnúfubak
Grænlendingar greindu frá því á fundi Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins, Nammco, fyrir helgi að hnúfubakskvóti þeirra við Vestur-Grænland væri 9 dýr í ár.
Nammco fundaði í Þórshöfn í Færeyjum 31. ágúst til 2. september. Á fundinum áréttuðu fulltrúar þjóðanna stuðning sinn við sjálfbæra nýtingu hvalastofna og ályktuðu að óhætt væri að veiða allt að 20 hnúfubaka á ári frá 2010 til 2015, en Grænlendingar hafa veitt einn hnúfubak á líðandi ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






