Hitnar undir blaðafulltrúa Camerons

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. stækka

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. PAUL HACKETT

Hitnað hefur undir Andy Coulson, blaðafulltrúa Davids Camerons, forsætisráðherra Bretlands, vegna nýrra upplýsinga um skipulagðar símhleranir blaðamanna hjá blaðinu News of the World, sem Coulson ritstýrði á árunum 2003 til 2007. Fullyrt er nú að Coulson hafi vitað um hleranirnar.

Málið kom fyrst upp árið 2007 og var einn blaðamaður News of the World dæmdur til fangelsisvistar eftir að hann játaði að hafa hlerað símtöl ráðamanna. 

Bandaríska blaðið New York Times birti nú um helgina greinar, sem byggja á rannsókn blaðsins og nýjum upplýsingum, m.a. frá Sean Hoare, fyrrum blaðamanni News of the World, sem fullyrðir, að Coulson hafi vitað um hleranirnar. Þá fullyrða leiðtogar breska Verkamannaflokksins, að lögregla í Bretlandi hafi  ekki rannsakað málið nægilega vel á sínum tíma.

Lundúnalögreglan segist vera tilbúin til að hefja rannsókn málsins að nýju í ljósi þessara upplýsinga.  

Coulson, sem sagði af sér ritstjórastarfinu 2007 eftir að blaðamaðurinn var fangelsaður, sagði gegnum talsmann sinn að hann hefði axlað ábyrgð á málinu með afsögninni. Þá sagðist hann vera tilbúinn til að ræða við lögreglu um málið hvenær sem er.

Opinber talsmaður Davids Camerons, forsætisráðherra, sagði að ráðherrann féllist á skýringar Coulsons, sem vísar því á bug að hann hafi vitað um hleranirnar. 

John Prescott, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, hefur krafist þess að lögregla hefji rannsókn á málinu að nýju en Prescott segist viss um að News of the World hafi hlerað síma sinn á sínum tíma.

Clive Goodman, sem stýrði fréttum News of the World af bresku konungsfjölskyldunni, og einkaspæjarinn Glenn Mulcaire voru árið 2007 dæmdir til fangelsisvistar fyrir að hafa hlerað talhólf síma aðstoðarmanna Vilhjálms Bretaprins.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is