Kampusch gefur út ævisögu

Natascha Kampusch er 22 ára gömul í dag. stækka

Natascha Kampusch er 22 ára gömul í dag.

Austurríska stúlkan Natascha Kampusch, sem var í haldi mannræningja í átta ár, hefur í fyrsta sinn sagt frá upplifun sinni í nýrri ævisögu, sem heitir 3.096 dagar. Bókin er væntanleg í þessum mánuði. Breska dagblaðið Daily Mail hefur fengið aðgang að henni og birtir hluta úr bókinni á vef blaðsins í dag.

Það vakti heimsathygli þegar Kampusch slapp úr prísundinni í ágúst árið 2006 þegar hún var 18 ára gömul. Í mars 1998 rændi Wolfang Priklopil Kampusch er hún var á leiðinni í skólann. Næstu átta ár hélt hann henni fanginni í litlum kjallara undir heimili sínu í Austurríki.

Í bókinni lýsir Kampusch þeim hryllingi sem hún upplifði sem fangi Priklopil, sem kallaði hana þrælinn sinn. Samskipti þeirra voru oftar en ekki mjög furðuleg, en hann fór m.a. fram á það að hún kallaði sig „meistara“.

Kampusch segir m.a. að Priklopil, sem starfaði sem verkfræðingur hjá Siemens, hefði sagt við sig að foreldrarnir hefðu neitað að greiða lausnargjald. Hann sagði að móðir Kampusch og faðir vildu ekki sjá hana aftur. Foreldrarnir væru í raun fegnir að vera lausir við dóttur sína. Þetta var ein af þeim aðferðum sem hann beitti til að yfirbuga hana andlega.

 Hún þurfti m.a. að þola líkamlegt ofbeldi af hálfu Priklopil, sem hlekkjaði hana við rúmið þegar þau sváfu saman. Þá segir hún frá því þegar henni var gert að sinna heimilisstörfunum hálfnakin og krúnurökuð. 

Einnig kemur fram að þegar Kampusch var 16 ára gömul var hún margsinnis búin að reyna að fremja sjálfsvíg til að binda enda á hryllinginn. Þá vó hún aðeins um 40 kíló, að því er segir í ævisögunni.

Umfjöllun Daily Mail.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is