Málflutningi lokið í Hæstarétti

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Málflutningi varðandi myntkörfulán er lokið í Hæstarétti en hann hófst í morgun. Deilt er um hvernig gera eigi upp svo kölluð gengistryggð lán og reikna eftirstöðvar þeirra eða ofgreiðslu. Mjög fjölmennt var í Hæstarétti og dómsalurinn fullskipaður og þurfti að vísa fólki frá.

Sigurmar K. Albertsson, lögmaður Lýsingar, ítrekaði kröfur sem hann lagði fram í málinu í héraðsdómi í sumar um vaxtakjör á gengistryggðum lánum. Lýsing hafi verið í góðri trú þegar lánin voru veitt og talið sig vera veita lögleg lán. Minnti hann á að lánin hefðu verið veitt undir eftirliti eftirlitsstofnana allan tímann. Í þessu máli væri deilt um vaxtakjör og því hefði verið haldið fram að vaxtakjörin á þessum erlendum lánum ættu að haldast eftir að búið væri að dæma gengistrygginguna ólöglega. Það gæti aldrei átt við því þeir vextir hefðu ekki verið í neinu samræmi við íslenskan veruleika á þessum tíma.

Forsendur fyrir vöxtunum hefðu brostið með dómi Hæstaréttar í júní um að gengistryggð lán væri ólögleg. Það væri rökrétt og sanngjarnt að lántakandinn myndi taka á sig sambærileg vaxtakjör og tíðkuðust á íslenskum lánamarkaði á þessum tíma  þegar lánið var veitt.

Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Guðlaugs Hafsteins Egilssonar lántakanda, segir að engin heimild sé fyrir því í lögum að breyta ákvæðum um vexti á lánunum. Því ættu þeir vextir sem voru á upprunalega lánasamningum að standa.

Það þýddi ekki fyrir lögmann Lýsingar að vísa til þess að einhverjir hagsmunir væru í húfi og einhver hundruð milljóna gætu tapast hjá lánafyrirtækjunum því ekkert hefði komið fram um að slíkt tap væri yfirvofandi. Þar að auki hefði aldrei verið upplýst hve mikið af skuldum íslensku lánafyrirtækjanna hefði verið afskrifað þegar þær voru endurreistar.

Gísli Baldur sagði við málflutninginn í morgun að þetta mál snerist um viðskipti tveggja aðila, fjármögnunarfyrirtækis og einstaklings, og um þau giltu mjög skýr lög. Ef vísa ætti til einhvers konar sanngirnissjónarmiða í dómnum eða hafa í huga að eins og fram hefur komið að móðurfélag Lýsingar, Exista, hefði á árunum fyrir hrun tekið stöðu gegn krónunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is