Reyndi að blekkja lögreglu en mistókst
Við nánari skoðun kom í ljós
að maðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum og mun hann verða kærður fyrir
ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti og hegningarlagabrot með því að hafa
notað ófalsað skjal í blekkingarskyni, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Selfossi.
Skömmu fyrir kl. 05:00 á sunnudagsmorgun voru brotnar tvær rúður í Litlu kaffistofunni. Fjórir ungir menn eru grunaðir um verknaðinn en þeir voru horfnir á braut í leigubifreið þegar lögregla kom á staðinn. Lögregla veit hverjir mennirnir eru og munu þeir verða kallaðir til yfirheyrslu vegna málsins.
Um kl. 01:00 aðfaranótt sunnudags voru unnin skemmdarverk í Guðnabakarí á Selfossi. Rúða var brotin á bakhlið og blómapottar framan við verslunina brotnir. Þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband í síma 480 1010.
Hjólreiðamaður varð fyrir bifreið á móts við Breiðumörk 2 í Hveragerði síðastliðið laugardagskvöld. Við það féll hann af hjólinu og slasaðist á höfði og öxl. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi til rannsóknar og aðhlynningar. Maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. Þegar slysið átti sér stað var farið að skyggja en ekkert ljós var á hjólinu né glit og maðurinn var ekki með hjálm.






