Rooney fer til Sviss

Wayne Rooney ásamt Fabio Capello á æfingu enska landsliðsins. stækka

Wayne Rooney ásamt Fabio Capello á æfingu enska landsliðsins. Reuters

Enska knattspyrnusambandið staðfesti í morgun að Wayne Rooney fari með enska landsliðinu til Sviss í dag en Englendingar mæta Svisslendingum í undankeppni EM annað kvöld. Rooney er helsta fréttaefnið enskra fjölmiðla í dag eftir að blöð á Englandi birtu fréttir þess efnis að hann hafi verið iðinn við að nýta sér þjónustu vændiskvenna undanfarin ár.

Orðrómur var í gangi í gær að Rooney yrði látinn sitja eftir heima og tæki ekki þátt í leiknum annað kvöld eftir þessar miður góðu fréttir en enska knattspyrnusambandið tjáði fjölmiðlum í dag að Rooney yrði í hópnum. 

Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga er sagður hafa rætt einslega við Rooney í gær en eins og fleiri er Capello áhyggjufullur yfir því hvort framherjinn snjalli sé í réttu hugarástandi til að spila en hann átti frábæran leik með Englendingum á föstudagskvöldið þegar þeir lögðu Búlgara, 4:0, á Wembley.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is