Birkir og Rúrik í byrjunarliðinu gegn Dönum
Ólafur Jóhannesson hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Dönum í undankeppni Evrópumótsins á Parken í kvöld. Tvær breytingar eru á liðinu frá því í leiknum gegn Norðmönnum.
Rúrik Gíslason og Birkir Már Sævarsson koma inní liðið í staðinn fyrir Veigar Pál Gunnarsson og Grétar Rafn Steinsson. Birkir verður hægri bakvörður í stað Grétars, sem er meiddur, og Rúrik kemur á hægri kantinn í stað Gylfa Þórs Sigurðssonar, sem verður fremsti miðjumaður í stað Veigars Páls.
Liðið er þá þannig skipað:
Markvörður:
Gunnleifur Gunnleifsson
Varnarmenn:
Birkir Már Sævarsson
Kristján Örn Sigurðsson
Sölvi Geir Ottesen
Indriði Sigurðsson
Miðjumenn:
Aron Einar Gunnarsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Eggert Gunnþór Jónsson
Kantmenn:
Rúrik Gíslason
Jóhann Berg Guðmundsson
Framherji:
Heiðar Helguson
Varamenn eru þá Árni Gautur Arason, Veigar Páll Gunnarsson, Ragnar Sigurðsson, Ólafur Ingi Skúlason, Birkir Bjarnason, Kolbeinn Sigþórsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson.






