Capello: Rooney stóðst pressuna

Wayne Rooney fagnar marki sínu í kvöld. stækka

Wayne Rooney fagnar marki sínu í kvöld. Reuters

Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga hrósaði Wayne Rooney í hástert eftir sigur sinna manna gegn Svisslendingum í undankeppni EM í kvöld. Flestra augu voru á Rooney eftir fréttir síðustu helgar þar sem upplýst var að hann hefði keypt sér þjónustu vændiskvenna. Rooney stóðst pressuna og skoraði eitt mark í leiknum, hans fyrsta í 12 leikjum með enska landsliðinu.

,,Rooney spilaði mjög vel. Hann var mikið í spili okkar og kom okkur á bragðið. Það var gífurlega mikil pressa á honum fyrir leikinn en hann stóðst hana og ég var virkilega ánægður með hans framlag,“ sagði Capello við Sky Sports eftir leikinn.

,,Liðið spilaði fyrri hálfleikinn hreint frábærlega og þessi sigur okkar var mjög mikilvægur. Það hægðist á leiknum í seinni hálfleik en sigurinn var mjög öruggur,“ sagði Capello.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is