Eiður Smári 18. Íslendingurinn hjá Stoke

Eiður Smári á æfingasvæði Stoke. stækka

Eiður Smári á æfingasvæði Stoke. www.stokecityfc.com

Eiður Smári Guðjohnsen er 18. íslenski leikmaðurinn sem kemur við sögu hjá enska knattspyrnuliðinu Stoke City. Þá var Guðjón Þórðarson knattspyrnustjóri liðsins 1999-2002 og félagið var um tíma í eigu Íslendinga sem réðu Guðjón til starfans.

Það má því vel kalla Stoke Íslendingalið en íslensku leikmennirnir sem hafa komið við sögu hjá Stoke eru:

Þorvaldur Örlygsson
Lárus Orri Sigurðsson
Bjarni Guðjónsson
Ríkharður Daðason
Brynjar Björn Gunnarsson
Arnar Gunnlaugsson
Pétur Hafliði Marteinsson
Stefán Þór Þórðarson
Birkir Kristinsson
Sigursteinn Gíslason
Einar Þór Daníelsson
Þórður Guðjónsson
Tryggvi Guðmundsson
Hannes Þ. Sigurðsson
Kristján Örn Sigurðsson
Tryggvi Guðmundsson
Hjörvar Hafliðason.

• Kristján Örn lék eingöngu með unglingaliðinu.

• Tryggvi og Hjörvar náðu ekki að spila leik með aðalliðinu.

Eiður Smári, sem samdi við Stoke til eins árs í síðustu viku, hefur æft grimmt með liðinu síðustu daga og hann leikur sinn fyrsta leik með því á mánudaginn en þá tekur Stoke á móti Aston Villa á Britannia.

Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, hefur gefið það út að Eiður muni spila á móti Villa. „Enda þótt Eiður eigi eftir að komast í betra form er hann frábær atvinnumaður. Enda þurfti hann að vera það til að spila í þeim gæðaflokki sem hann hefur gert og ná þeim árangri sem hann hefur náð, “ segir Pulis.

gummih@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is