Færeyski lögmaðurinn gagnrýnir Jenis

Jóhanna Sigurðardóttir og Kaj Leo Johannesen á Þingvöllum þegar færeyski lögmaðurinn kom í heimsókn hingað ... stækka

Jóhanna Sigurðardóttir og Kaj Leo Johannesen á Þingvöllum þegar færeyski lögmaðurinn kom í heimsókn hingað á síðasta ári.

Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, gagnrýnir Jenis av Rana, leiðtoga færeyska Miðflokksins, harðlega fyrir að neita að mæta í kvöldverðarboð til heiðurs Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í kvöld.

Johannesen sagði við færeyska útvarpið í morgun, að Jenis ætti að skammast sín fyrir ummæli sín. Jenis av Rana sagðist ekki ætla að mæta í kvöldverðinn vegna þess að heimsókn íslenska forsætisráðherrans væri ögrun en Jenis er mjög andvígur auknum réttindum samkynhneigðra.    

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is