Forseti FIDE í samskiptum við geimverur
Kirsan Iljumzhinov segist ekki ætla að sækjast eftir endurkjöri sem forseti rússneska lýðveldisins Kalmíjkíu en ætli þess í stað að einbeita sér að starfi sínu sem forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE. Hann hefur meðal annars komist í fréttir fyrir lýsingar á samskiptum sínum við geimverur.
Iljumzhinov hefur verið forseti Kalmíjkíu í 17 ár en ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri þegar núverandi kjörtímabil rennur út í október.
Iljumzhinov sagðist í viðtali við fréttastofuna Interfax ætla að víkja til hliðar í samræmi við stefnu Dmitrís Medvedevs, forseta Rússlands, sem vill að skipt verði oftar um leiðtoga í rússneskum lýðveldum og héröðum.
„Ég ætla ekki að yfirgefa Kalmíjkíu og mun halda áfram að vinna til hagsbóta fyrir þjóð mína," bætti hann við. Iljumzhinov sagðist einnig ætla að reyna að fá Dalai Lama í heimsókn til Elista en búddatrú er ríkjandi trú í lýðveldinu.
Iljumzhinov, sem er 48 ára, hefur látið reisa byggingar, sem hann kallar Skákborgina, í Elistu, höfuðborg Kalmíjkíu en hann hefur verið forseti FIDE frá árinu 1995.
Ársþing FIDE fer fram 29. september í rússnesku borginni Khantí-Mansijsk í Úralfjöllum. Bæði Iljumzhinov og Anatolí Karpov, fyrrum heimsmeistari í skák, sækjast þar eftir embætti forseta FIDE og báðir segjast þeir njóta stuðnings rússneska skáksambandsins.
Karpov hefur varið miklum tíma að undanförnu til að kynna framboð sitt og hefur ferðast til fjölda landa til að afla stuðnings, þar á meðal Færeyja. Segist hann vilja færa sönnur á, að Iljumzhinov sé of sérvitur til að geta stýrt alþjóðlegu skákhreyfingunni.
Báðir hafa þeir Iljumzhinov og Karpov opnað vefsíður þar sem þeir ata hvor annan auri.
Iljumzhinov sagði í viðtali, sem birtist í apríl, að geimverur hefðu lent gegnsæju hylki á svölunum á lúxusíbúð sinni í Moskvu. „Ég sat með bók og var að horfa á sjónvarp og var að sofna. Þá fann ég að einhver kallaði á mig," sagði hann.
Framboð Karpovs sagði, að þessar yfirlýsingar Iljumzhinovs hefðu skaðað FIDE og skákhreyfingana í heild. „Umheimurinn hló vikum saman að sögum hans um menn í gulum geimbúningum og að auðmýkingu skákheimsins."
Skáksamband Íslands hefur lýst yfir stuðningi við framboð Karpovs.






