Jarðhitaborar fluttir úr landi

Samorka segir, að fjölda sérhæfðs starfsfólks hafi að undanförnu verið sagt upp hjá fyrirtækjum, sem sérhæfa sig í nýtingu jarðhita. Þá sé verið að undirbúa flutning jarðhitabora úr landi.

„Þessar tafir geta aðeins leitt til þess að sérþekking í rannsóknum og orkunýtingu hérlendis glatast, sem hefur í för með sér að í framtíðinni verða framkvæmdir dýrari og flóknari en ella og verulega mun draga úr nauðsynlegum rannsóknum og þróun á jarðhitakerfum landsins," segir í ályktun sem stjórn Samorku hefur sent frá sér.

Segir í ályktuninni, að þessi þróun muni ennfremur hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir almennt viðhald á jarðhitamannvirkjum í rekstri, og hafi ekki síður alvarlegar afleiðingar fyrir rekstur og öryggismál þeirra virkjana og hitaveitna sem starfandi eru. Sérhæfðan búnað og starfsfólk hafi þurft að kalla til með stuttum fyrirvara til að lagfæra og eða hemja jarðhitaholur vegna bilana, útfellinga eða óvæntra atburða á borð við jarðskjálfta. Án teljandi verkefna á sviði nýframkvæmda sé hins vegar erfitt ef ekki ómögulegt að halda hér úti slíkri viðbúnaðargetu.

„Til að tryggja áfram aðgengi að þeirri sérhæfðu þjónustu sem jarðhitanýting þarf á að halda hvetur stjórn Samorku stjórnvöld og aðra hlutaðeigandi til að greiða götu þeirra arðbæru verkefna sem íslensk orkufyrirtæki hafa verið með í undirbúningi svo þau komist til framkvæmda sem fyrst," segir í ályktuninni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is