Erlent
| mbl
| 7.9.2010
| 15:18
Lögreglumaður fangelsaður fyrir árás á konu
Breskur lögreglumaður, sem réðist á konu í fangaklefa, hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás. Myndir náðust á eftirlitsmyndavél af árásinni.
Lögreglumaðurinn Mark Andrews, 37 ára, sást á myndunum drösla Pamelu Somerville, 59 ára, gegnum lögreglustöðina í Wiltshire og inn í fangaklefa þar sem hann kastaði konunni í gólfið. Konan fékk skurð á höfuðið og þurfti að sauma sárið.
Lögreglumanninum var vikið tímabundið frá störfum á fullum launum eftir að hann var fundinn sekur um líkamsárás í júlí. Í dag var hann síðan dæmdur til fangelsisvistar og var leiddur út úr dómhúsinu í handjárnum.
Somerville var handtekin í júlí 2008 eftir að hún fannst sofandi í bíl sínum og neitaði að blása í áfengismæli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






