Erlent
| mbl
| 7.9.2010
| 15:55
Mannskæð árás í Pakistan
Tólf eru látnir og yfir 50 særðir eftir að sprengja sprakk við lögreglustöð í borginni Kohat í Pakistan í dag. Um sjálfsvígsárás var að ræða. Að sögn yfirvalda eru konur og börn í meirihluta þeirra sem særðust og létust.
Þau segja að 10 byggingar hafi jafnframt skemmst mikið í sprengingunni og liggur fólk fast inni í rústunum.
Um var að ræða sprengju sem var komið fyrir í bifreið. Henni var ekið upp að hliði lögreglustöðvannar, n.t.t. við svæði þar sem lögreglumenn og fjölskyldur þeirra koma saman. Fólk var að ljúka föstu þegar sprengjan sprakk.
Í létu 19 lífið þegar sprengja sprakk við lögreglustöð í norðvesturhluta landsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






