Mótmæla hækkun eftirlaunaaldurs með verkfalli

Stjórnvöld í Frakklandi hyggjast hækka eftirlaunaaldurinn en launþegar eru allt annað en ánægðir með það og er gert ráð fyrir miklum truflunum vegna verkfalla næsta sólarhringinn.

Samkvæmt gildandi lögum geta Frakkar farið á eftirlaun 60 ára að því gefnu að þeir hafi greitt í lífeyrissjóð í 40 ár og hálfu ári betur, en þeir verða að vera orðnir 65 ára til að fá full eftirlaun. Stjórnvöld vilja hækka eftirlaunaaldurinn í 62 ár miðað við að fólk hafi greitt í lífeyrissjóð í 41,5 ár, en fullur lífeyrir verði greiddur við 67 ára aldur.

Mikar truflanir verða á lestarferðum í París í dag og flugmálayfirvöld hafa beðið flugfélög um að fækka ferðum til Parísar um 25% meðan á verkfallinu stendur. Áætlun Air France skerðist um allt að 90% á skemmri flugleiðum en helst að mestu óbreytt á lengri leiðum.

Meira en 800.000 manns tóku þátt í allsherjarvekfalli í júní sl. og er gert ráð fyrir meiri þátttöku að þessu sinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is