Ný og betri Naomi Campbell

Naomi Campbell er skapstór kona stækka

Naomi Campbell er skapstór kona Reuters

Naomi Campbell hefur náð sáttum við sjálfa sig. Ofurfyrirsætan hefur í gegnum tíðina tengst hverju hneykslinu á fætur öðru en segist nú vera orðin betri manneskja þökk sé bænum og heilbrigðum lífsstíl.

Í viðtali við spænskt tímarit segir Naomi að hún hafi unnið ótrúlega mikið síðustu 25 ár og alltaf reynt að líta sem best út á sýningarpöllunum. ,,Ég hef verið jafn kröfuhörð á aðra og ég er við sjálfa mig,'' segir fyrirsætan.

Árið 2000 var Naomi fundin sek um að ráðast á aðstoðarmann sinn og árið 2003 var hún ásökuð um að henda síma í annan aðstoðarmann sinn.

Aðeins ári seinna var hin 39 ára gamla ofurfyrirsæta sökuð um að berja ráðskonu sína ítrekað í andlitið og árið 2005 ásakaði enn einn aðstoðarmaðurinn hana um að berja sig í höfuðið með Blackberry-síma.

Enn var Naomi handtekin fyrir að kasta skarthúðuðum farsíma sínum í ráðskonu sína og árið 2008 var Naomi handtekin fyrir að ráðast á lögregluþjón eftir að hafa týnt farangri sínum á flugvelli.

Nýlega játaði ofurfyrirsætan að hafa þegið illa fengna demanta frá einræðisherranum Charles Taylor.

''Enginn er fullkominn, ekki einu sinni ég sjálf,'' segir leikkonan og bætir við að það hafi tekið hana langan tíma að átta sig á þessu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Fimmtudaginn 12. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Sunnudaginn 8. janúar

Laugardaginn 7. janúar

Fimmtudaginn 5. janúar

Miðvikudaginn 4. janúar


finnur.is