Öflugir eftirskjálftar í Christchurch
Margir eftirskjálftar mældust í Christchurch á Nýja Sjálandi í nótt og þar af voru tveir 5,4 stig á Richter.
Fréttavefur BBC hafði eftir Bob Parker, borgastjóra Christchurch, að skjálftarnir í nótt hefðu gert illt verra en um 100.000 hús skemmdust í jarðskjálftanum á laugardag, sem mældist 7,0 stig á Richter.
Neyðarástandi hefur verið framlengt í borginni og gildir það til morguns en sérfræðingar óttast allt að 6,0 stiga eftirskjálfta í næstu viku og segja að ástandið geti varað í margar vikur.
Um 300 manns hefur verið komið fyrir í neyðarathvörfum og íbúum er ráðlagt að sjóða allt drykkjarvatn, en enginn lét lífið í skjálftanum á laugardag og aðeins hefur verið tilkynnt um að tveir hafi slasast.
Meira en 14.000 jarðskjálftar mælast árlega á Nýja Sjálandi en að jafnaði ná aðeins 20 þeirra styrkleika 5,0. Síðan á laugardag hafa mælst meira en 80 eftirskjálftar.






