Innlent
| mbl
| 7.9.2010
| 14:56
Svifryk yfir mörkum
Aska frá svæðinu í kringum Eyjafjallajökul berst um þessar mundir yfir höfuðborgarsvæðið en hvöss suðaustlæg er ríkjandi. Segir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, að styrkur svifryks muni líklega fara yfir sólarhringsheilsuverndarmörk í dag.
Á hádegi í dag var hálftímagildi svifryks í mælistöðinni á Grensásvegi 154 míkrógrömm á rúmmetra og í farstöðinni sem staðsett er við leikskólann Blásalir, 134 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörk eru 50 míkrógrömm.
Heibrigðiseftirlitið segir, að gert sé ráð fyrir að vind lægi í kvöld og það geti haft jákvæð áhrif á loftgæði. Á morgun sé spáð úrkomu sem ætti að draga úr líkum á svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






