Annað áfall hjá Tottenham

Jermain Defoe á sjúkrabörunum í gærkvöld. stækka

Jermain Defoe á sjúkrabörunum í gærkvöld. Reuters

Vefútgáfa breska blaðsins Daily Mail greinir frá því í kvöld að Jermain Defoe framherji Tottenham og enska landsliðsins verði frá keppni í það minnsta næstu sex vikurnar vegna ökklameiðsla sem hann hlaut í sigurleik Englendinga gegn Svisslendingum í gærkvöld.

Defoe er annar leikmaðurinn sem Tottenham missir í meiðsli á skömmum tíma en miðvörðurinn Michael Dawson meiddist illa á hné og ökkla í leik Englands og Búlgaríu á föstudaginn og hann verður ekki með næstu tvo mánuðina.

Defoe, sem hefur skoraði grimmt fyrir enska landsliðið og Tottenham, kemur til með að missa af þremur leikjum Tottenham í Meistaradeildinni auk þess sem hann verður fjarri góðu gamni í leik Englendinga gegn Svartfellingum í næsta mánuði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar


finnur.is