Háskólinn í Cambridge sá besti

Kapella King's College í Cambridge. stækka

Kapella King's College í Cambridge.

Háskólinn í Cambridge á Englandi er besti háskóli heims samkvæmt nýjum lista, sem stofnunin QS hefur tekið saman. Enginn íslenskur skóli er á listanum yfir 200 bestu háskóla heims.

Stofnunin hefur tekið saman lista yfir bestu háskólana frá árinu 2004 og hefur Harvard-háskóli í Massachusetts í Bandaríkjunum ávallt verið í 1. sæti þar til nú en hann er í 2. sæti.

Í þriðja sæti er Yale háskóli  í Connecticut í Bandaríkjunum eins og undanfarin ár. Í 4. sæti er Lundúnaháskóli, í 5. sæti er Tækniháskólinn í Massachusetts, Oxfordháskóli á Englandi er í 6. sæti, Konunglegi háskólinn í Lundúnum er í 7. sæti, Chicago-háskóli í 8. sæti, Tækniháskólinn í Kalíforníu í 9. sæti og Princetonháskóli í 10. sæti. Alls eru háskólar í Bandaríkjunum og Bretlandi í 17 efstu sætunum.

Kaupmannahafnarháskóli er talinn sá besti á Norðurlöndum en hann er  í 45. sæti í heiminum. Uppsalaháskóli í Svíþjóð er í 62. sæti og háskólinn í Lundi í 72. sæti. Háskólinn í Helsinki er í 75. sæti og Árósaskóli í Danmörku í 84. sæti. Háskólinn í Ósló er í 100. sæti og skólinn í Björgvin í   133. sæti.

Yfirlýst markmið Háskóla Íslands er að komast í raðir 100 bestu háskóla í heimi.

Listinn í heild

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is