102 handteknir vegna barnakláms

Hald var lagt á tölvur og harða diska. Myndin tengist fréttinni ekki beint. stækka

Hald var lagt á tölvur og harða diska. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Lögreglan í Póllandi tilkynnti í dag að 102 handtökur hefðu verið framkvæmdar víðsvegar um landið vegna gruns um eignarhald og dreifingu á barnklám um internetið. Leitað var í 114 íbúðum, fyrirtækjum og á netkaffihúsum og þriðjudag og miðvikudag samkvæmt lögreglu.

Lagt var hald á 133 tölvur og harða diska og 3.500 geisladiska og dvd diska.  Lögreglan hefur staðið í ströngu við að uppræta barnaklám, en í fyrri aðgerðum hennar í apríl og í júlí á þessu ári voru alls 111 handteknir.  Þá  voru 120 handteknir í svipuðum aðgerðum í lok janúar, grunaðir um að safna og dreifa barnaklámi á netinu. Á síðasta ári voru 8 rassíur gerðar og 473 handteknir í tengslum við rannsóknir á barnaklámi.

Samkvæmt pólskum lögum er dreifing á barnaklámi saknæm allt að 8 ára fangelsisdómi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is