Erlent
| AFP
| 9.9.2010
| 18:33
136 heimili brunnin í Colorado
Að minnsta kosti 136 heimili hafa nú eyðilagst í skógareldunum sem brutust út í Colorado í Bandaríkjunum á mánudaginn. Um 3.500 manns hafa flúið eldana sem geysa í nágrenni borgarinnar Boulder. Fjögurra er saknað.
2.600 hektarar lands hafa brunnið. Um 300 slökkviliðsmenn berjast við eldana með hjálp nokkurra flugvéla og hafa yfirvöld heitið því að liðsauki sé væntanlegur. Enn er ekki vitað hvernig eldarnir kviknuðu. Ekki er vitað til þess að neinn hafi látist eða slasast.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






