Húsleitir í belgískum kirkjum ólöglegar
Dómstóll í Belgíu úrskurðaði í dag að nýlegar húsleitir lögreglu sem liður í rannsókn á meintu barnaníði kaþólskra presta væru ólöglegar. Samkvæmt dómnum má saksóknari ekki reiða sig á ýmis gögn frá kaþólsku kirkjunni sem lögregla lagði hald á í júní. Þessi niðurstaða gæti þýtt að langvarandi rannsókn belgísku lögreglunnar á barnaníðinu sé farin út um þúfur.
Fjölmargar ásakanir hafa komið fram á hendur kirkjunnar mönnum í Belgíu síðustu misseri. Í apríl síðastliðnum skók m.a. mikið hneykslismál kirkjuna þegar biskupinn í Brugge, Roger Vangheluwe, sagði af sér og viðurkenndi að hafa beitt dreng kynferðisofbeldi bæði áður og eftir að hann varð biskup.
Lögregla hefur rannsakað ásakanir um barnaníð kaþólskra presta í nokkur ár en enn hafa engar ákærur verið gefnar út. Niðurstaða áfrýjunardómstólsins í Brussel í dag er því mikið áfall, þar sem vonast var til að gögnin sem lögregla lagði hald á í rassíum sem gerðar voru í höfuðstöðvum kirkjunnar og á heimili fyrrum erkibiskups, gætu verið forsenda fyrir saksóknara til að gefa út ákærur. Þar á meðal eru tæplega 500 tölvuskrár og tölva frá aðalskrifstofum kirkjunnar. Samkvæmt dómnum ber lögreglu að skila gögnunum.
Núverandi erkibiskup Belgíu, kardínálinn Andre-Joseph Leonard, sagði í kjölfar dómsins að það væri í allra hag að grundvallarlög og reglur væru virt. Hann ítrekaði jafnframt að hann væri á engan hátt „mótfallinn lögreglurannsókn sem framkvæmd væri með réttum hætti". Benedikt XVI páfi gagnrýndi aðgerðir belgísku lögreglunnar harðlega, en belgíski dómsmálaráðherrann sagði þær fullkomlega eðlilegar.






