Manntal samkvæmt stéttaskiptingu á Indlandi
Fyrsta manntal á Indlandi á grundvelli stéttaskiptingar síðan árið 1931 verður framkvæmt á næsta ári, samkvæmt frumvarpi sem samþykkt var í dag á indverska þinginu. Manntalið mun fara fram á tímabilinu frá júní og fram í september 2011, en valkvætt verður hvort spurningum um stéttastöðu er svarað.
Mismunun á grundvelli stéttaskiptingar samkvæmt hindúisma er ólögleg á Indlandi en er eftir sem áður enn mikið vandamál. Yfirvöld segja að markmið manntalsins sé að auðvelda jákvæða mismunun sem rétta á af hlut þeirra sem ekki njóta jafnréttis. Áætlunin er umdeild og segja gagnrýnendur að manntalið bjóði upp á spillingu.
Talið er að manntalið muni kosta ríkissjóð á bilinu 650-859 Bandaríkjadali. Aðeins einu sinni áður hefur verið litið til stéttaskiptingar í manntali á Indlandi og það var árið 1931 þegar landi heyrði enn undir bresku krúnuna. Almennt manntal hófst í apríl síðastliðnum. Rúmlega 2,5 milljónir manna munu næsta árið hafa þann starfa að telja og flokka Indverja, sem eru 1,2 milljarður talsins, eftir kyni, trú, starfi, menntun og loks stétt. Þá verða í fyrsta skipti teknar myndir og fingraför af öllum yfir 15 ára aldri og er ætlunin að nýta þær upplýsingar til að gefa út nafnskírteini fyrir alla fullorðna Indverja.






