Obama fordæmir bókabrennu
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að fyrirhuguð bókabrenna kirkju í Flórída sé ekkert annað en tækifæri fyrir al-Qaeda til að fjölga í sínu liði. Kirkjan hyggst brenna eintök af Kóraninum þann 11. september nk.
Verði hið heilaga rit múslíma brennt á báli getur það haft alvarlegar afleiðingar og stefnt lífi hermann í Pakistan og Afganistan í hættu, að sögn forsetans.
Fjölmargir um heim allan hafa fordæmt fyrirætlanir prestsins Terry Jones, sem fer fyrir 50 manna söfnuði í Gainesville í Flórída. Jones heldur því fram að brennan sé leið til að standa í hárinu á hryðjuverkamönnum.
Obama segir í samtali við sjónvarpsstöðina ABC að hann voni að Jones skilji hvað hann sé að gera. Þetta sé þvert á bandarísk gildi. Obama bendir á að Bandaríkin byggi á hugmyndum um frelsi og umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum.
„Ég vil að hann skilji að þetta hættuspil, sem hann er að tala um að gera, getur stefnt lífi ungra karla og kvenna í hernum í hættu,“ sagði Obama.






