Octopus á norðvesturleiðinni

Octopus siglir inn sundin við Reykjavík. stækka

Octopus siglir inn sundin við Reykjavík. Jakob Fannar Sigurðsson

Octopus, lúxussnekkja bandaríska auðmannsins Paul Allen sem dvaldi langdvölum við Miðbakkann í Reykjavík og á Pollinum við Akureyri í sumar, er nú á norðvesturleiðinni svokölluðu, frá Atlantshafinu til Kyrrahafsins í gegnum norðurheimskautseyjaklasa Kanada.

Íbúar í þorpinu Pond Inlet, á nyrsta odda Baffinseyju í Nunavut í Norður-Kanada ráku upp stór augu í síðustu viku þegar snekkjan glæsilega  varpaði þar akkerum.

Íbúar eyjunnar eru um 1300 talsins og varð enginn þeirra var við einn einasta áhafnarmeðlim eða farþega Octopus þrátt fyrir 5 daga dvöl í höfninni en snekkjan vakti mikla athygli þar rétt eins og hér á landi enda um að ræða einhverja glæsilegustu og fullkomnustu lúxussnekkju heims og slíkir farskjótar eru ekki algeng sjón svo norðarlega.

Kanadíska strandgæslan hefur staðfest að Octopus hafi sótt um leyfi til að reyna við norðvesturleiðina, sem er illfær. Vefmiðillin Alaska Dispatch hefur eftir Alyssu Haak, ritstjóra tímaritins Power and Motoryacht, að ríkustu snekkjueigendurnir leiti nú í ríkari mæli á norðurslóðir þar sem þeir hafi fengið leiða á því að sigla um Miðjarðar- og Karíbahöf.

Norðvesturleiðin getur hinsvegar verið hættuleg jafnvel stærstu skipum. Í liðinni viku stöðvuðust 2 stór skip á siglingaleiðinni, þar á meðal var skemmtiferðaskip með 128 farþegum sem þurftu að bíða þess í tvo daga að ísbrjótur landhelgisgæslunnar losaði þá úr kaldri prísundinni.

Octopus er hinsvegar með sérstaka styrkingu, sem á að auðvelda skipinu siglingu um norðurheimskautið. Haak bendir auk þess á, að skipverjar þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að festast, þeir komist alltaf auðveldlega burt á þyrlunum tveimur sem eru um borð.

Það var norski landkönnuðurinn Roald Amundsen, sem fyrstur sigldi þessa leið fyrir rúmri öld. 

Kort sem sýnir norðvesturleiðina.

Kort sem sýnir norðvesturleiðina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is