Stúlka sem leitað var að er fundin

Björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. stækka

Björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

Um 60 björgunarsveitamenn leituðu nú síðdegis að 17 ára gamalli stúlku, sem saknað var í dag. Stúlkan, sem er með Downs heilkenni, fannst í Hinu húsinu þar sem hún hafði lokast inni á baðherbergi.

Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, að stúlkan hafi væntanlega verið inni í baðherberginu í dágóða stund.  Starfsmaður í Hinu húsinu sá bakpoka á staðnum og kannaði í kjöfarið málið og fann stúlkuna. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag


finnur.is