Þjóðar

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Hver þjóðarleiðtoginn á fætur öðrum hefur stigið fram og fordæmt áform lítils safnaðar á Flórída í Bandaríkjunum að brenna eintök af Kóraninum, trúarriti múslima, á laugardag. Óttast er að viðbrögð múslima verði afar hörð gangi áform safnaðarins eftir. 

Þúsundir múslima tóku þátt í mótmælaaðgerðum í Afganistan í dag og einnig í Pakistan. 

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, franska utanríkisráðuneytið, talsmenn NATO og leiðtogar múslimaríkja hafa allir fordæmt áform safnaðarins og hvatt hann til að hætta við þau. Bandaríkjastjórn íhugar að hafa samband við prest safnaðarins og biðja hann að hætta við.

Bandaríski presturinn Terry Jones og fylgismenn hans í Flórída sögðust í gær ætla að standa við áform sín um að brenna eintök af Kóraninum. „Við verðum að senda skýr skilaboð til róttækra afla í íslam,“ sagði Jones sem hefur skrifað bók sem nefnist „Íslam er af hinu illa“.

„Við trúum því staðfastlega að þetta sé nokkuð sem Guð hafi boðið okkur að gera,“ hafði fréttamaður AFP eftir Wayne Sapp, aðstoðarpresti í söfnuði Jones, Dove World Outreach Center í háskólaborginni Gainesville í Flórída. Að sögn AFP voru aðstoðarpresturinn og eiginkona hans vopnuð skammbyssum þegar fréttamaðurinn ræddi við þau.

Sapp sagði að þeim Jones hefðu borist margar morðhótanir vegna áforma þeirra um að brenna eintök af Kóraninum þegar níu ár verða liðin frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september 2001.

Í söfnuðinum eru aðeins um 50 manns, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is