Tilkynnt um bilun annan hvern dag

Jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði stækka

Jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði mbl.is/ÞÖK

Orkuveita Reykjavíkur keypti hitaveitu Hveragerðis árið 2004 og nam kaupverðið 260 milljónum króna að teknu tilliti til yfirtekinna skulda. Í tilkynningu frá OR kemur fram að hitaveitan hafi verið sú frekasta á viðhald í rekstri frá OR. Lætur nærri að tilkynnt hafi verið um bilun í veitukerfinu annan hvern dag, allt árið 2008, samkvæmt upplýsingum frá OR.

Á fundi sem Helgi Þór Ingason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hélt með ýmsum hagsmunaaðilum í gær komu fram athugasemdir frá bæjarstjóranum í Hveragerði vegna hitaveitunnar í bænum. Í tilefni þeirra bauðst forstjóri OR til að ganga til viðræðna við bæjarstjórann um að bærinn kaupi veituna aftur.

„OR keypti hitaveituna 2004 og nam kaupverðið 260 m.kr. að teknu tilliti til yfirtekinna skulda. Það eru 370 m.kr. að núvirði. Gjaldskrá var þá færð til samræmis við verð á höfuðborgarsvæðinu.

Frá kaupunum hefur OR gert gagngerar umbætur á hitaveitunni, sem hefur verið sú frekasta á viðhald í rekstri hjá OR. Árið 2008 var þriðja hver tilkynning til OR vegna bilunar í hitaveitu vegna veitunnar í Hveragerði. Viðskiptavinir OR í Hveragerði eru hinsvegar 2% af hitaveituviðskiptavinum OR. Lætur nærri að tilkynnt hafi verið um bilun í veitukerfinu annan hvern dag, allt árið 2008.

Frá kaupunum hefur OR fjárfest í verulegum endurbótum á veitukerfinu í Hveragerði enda hefur dregið mjög úr bilanatilkynningum síðustu misseri. OR hefur orðið vör við ánægju viðskiptavina í Hveragerði með útbæturnar.
Kaupsamningur um hitaveitu Hveragerðis er ótímabundinn en í honum er gagnkvæmt uppsagnarákvæði þar sem hvor aðili um sig getur sagt honum upp með 15 ára fyrirvara. Skal þá meta eignir og miða við endurstofnverð og hlutfall aldurs af áætluðum líftíma eignanna. Uppsagnarfresturinn kemur vitaskuld ekki í veg fyrir að aðilar nái samkomulagi innan þess frests," segir í tilkynningu frá OR.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is