Erlent
| mbl
| 27.1.2012
| 20:34
| Uppfært
29.1.2012
0:14
384 börn hafa fallið í Sýrlandi
Að mati UNICEF hafa 384 börn fallið í átökunum í Sýrlandi síðan þau hófust fyrir 10 mánuðum. Flest þessara barna eru drengir, sumir yngri en 14 ára.
Tugir óbreyttra borgara féllu í Sýrlandi í dag í mótmælaaðgerðum víða í landinu.
Sameinuðu þjóðirnar segja að yfir 6.000 manns hafi fallið síðan mótmælin hófust. Stjórnvöld í Sýrlandi segja hins vegar að um 2.000 lögreglumenn og öryggissveitarmenn hafi fallið í átökum við hryðjuverkamenn sem herji á landið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






