Ætti að senda Gingrich til tunglsins
„Það ætti að senda Newt Gingrich til tunglsins og Mitt Romney í Hvíta húsið.“ Þetta sagði John McCain, fyrrum forsetaframbjóðandi í sjónvarpsviðtali í dag.
McCain er í hópi stuðningsmanna Romney og kom fram á kosningafundi með honum í Lakeland í Flórída í kvöld. McCain er ekki hrifinn af Gingrich og lét það í ljós með ákveðnum hætti í kvöld.
Með ummælum sínum vísaði McCain til orða Gingrich sem hann lét falla á kosningaferðalagi í fylkinu, en hann sagði að í lok síðara kjörtímabils síns sem forseti vildi hann að Bandaríkjamenn væru búnir að koma sér upp varanlegri bækistöð á tunglinu.
McCain hefur einnig minnt kjósendur í Flórída á feril Gingrich sem forseta fulltrúadeildarinnar, en hann varð að segja af sér vegna hneykslismála.
Nýjasta skoðanakönnun sýnir Romney með 9% forskot á Gingrich í Flórída. Prófkjör fer fram í fylkinu 31. janúar. Úrslitin þykja ekki einungis mikilvæg fyrir framhald einvígisins heldur eru reglurnar í Flórída þannig að sá sem sigrar þar fær alla kjörmennina.






